omg skiluru?!
16.10.2006 14:50:06 / val4-

Its time!

Er komin með nýja síðu...

         See you on the flip side :lol:

www.valad.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 16:32:27 / val4-

afi

go to ass fattiði.. ég er hætt! það er sumar

hata tölvuna mina hvort sem er :( ....

» 6 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 02:07:02 / val4-

.....







 Pása!!!

kem auðvitað aftur ;)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 01:05:48 / val4-

AAA.. ÖÖÖ

Mhh.. Mig langar til Kína.
Ég var að lesa bloggið hjá Unu tvíbura og vá hvað ég öfunda þær að vera í Kína! Spáið í ævintýrum að fara BARA til Kína.... Þvílíkur draumur :D Bara vá stelpur þið eruð ógó heppnar og þið fáið alla mína öfund ! :*

En annars er fátt að frétta... helvítis umferðin í Reykjavík á eftir að ganga frá mér.
Ég á ekki eftir að deyja í bílslysi nei... Ég á eftir að fá taugaáfall á Sæbrautinni á föstudegi kl 16:30.. Hata þennan fkn tíma!!! :evil:

Reyndar er ég komin með algjört ógeð af Rvk bara almennt.. Nema, samt ef ég fer eitthvað að þá fæ ég heimþrá.. Ég fæ heimþrá upp í Mosó! Erfitt líf... :whut:

En JÁ, nóg af því.. Í ár er stórviðburður í lífi mínu.. Ég fæ að kjósa í fyrsta skipti :)
Og ég veit EKKERT hvað eða hvern eða hvernig maður kýs! hehe...
Er samt ógeðslega mikið að fylgjast með í útvarpinu með auglýsingarnar því sjónvarpið sé ég einungis á hlaupum út eða einstöku 5 mínúturnar um helgar..
Og mig langar að kjósa EXBÉ útaf þeir gáfu mér sápukúlur. Og svo heyrði ég auglýsingu frá Ungum Sjálfstæðis...eitthvað. Ég veit ekki einu sinni hvort þau séu að bjóða sig fram eða hvort það sé e-h "flokkur" eða what ever, en ef það er í boði að þá ætla ég að kjósa það útaf þau eru með töff auglýsingu.
Svo kannski bara ætla ég ekki að kjósa neitt.. Held það sé betra samt :$

Já... think about that.

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 20:20:02 / val4-

Forever young

Jamm og já.. ég blogga aldrei lengur útaf ég veit ekkert hvað ég á að skrifa.
Svo erfitt að bara skrifa EITTHVAÐ.. ég ætla ekki að fara að gera eitthvað.....

"Hæ.. í dag fór ég að vinna og fór svo heim og þá var Gyða frænka í heimsókn, og ég og Ásta fórum aðeins á rúntinn og svo til Gaua....." Nei? held það sé ekki neitt að gera sig sko..

Komið með hugmyndir plís.. Mér finnst líka hundleiðinlegt að skrifa blogg, og svo commentar aldrei neinn, kannski 20 manns bunað koma á síðuna og ekkert einasta comment.. Hér með er skylda að commenta ef ÞÚ! kemur inn á þessa síðu.. Eða þá skrifa í gestabók.. Mar vill fá að vita hverjir eru að fylgjast með manni 8)

En VÁ, það er komið feitt sumar! Maður er bara í sumarfíling allan sólahringinn, dagurinn er orðin svo rosalega langur.. Núna á Laugardaginnn var bara sól og bjart fram að miðnætti (amk hérna í siðmenningunni ;) ) veit ekki hvernig þetta er þarna í sveitinni, en ég veit hvað ég sakna Sigló ÓGÓ mikið :cry: og allra bara... Finnst öööömurlegt að eyða ekki sumrinu á gamla Sigló ... fara í hafnarbolta og körfubolta og vaða í ánni, fótbolti síðla kvölds útá Hóli.. ...... *sigh* :cry: Nei djók ein gamaldags. Ég vissi ekki að ég væri svona mikill sveitalingur.. En mér finnst samt alltaf best að búa hér í Rvk, ðis is mæ táwn... :haha:

Ég er mikið búin að vera spá í að koma Sigló.. Er oft bunað vera hugsa til ykkar allra, sykurhnoðrarnir mínir ;* Og ég hef ákveðið það að ég ÆTLA að mæta þarna, fyrstu helgina í Júní (Það er að segja ef ég er ekki að vinna) þá er ég súkkó og mæti bara helgina á eftir hehe.. Ég bara VERÐ að fara að drífa í þessu.. Hef ekki komið síðan um áramótin, og það er bara ALLOTF langur tími. Sérstaklega þar sem þið, gullmolarnir mínir eru svo mikið að biðja mig að koma og ég er bara farin að fá samviskubit :whut:

En ég má ekki vera að þessu... Sólin skín, skín í augun og ég sé ekki skít á skjáinn þannig ég læt þetta bara gott heita og mér finnst MJÖG viðeigandi að óska ykkur gleðilegs sumars og hafið það sem allra best í sumar... Ég veit að ég mun gera það ;)

» 7 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 01:13:56 / val4-

bla

I open my eyes
I try to see but I'm blinded by the white light
I can't remember how
I can't remember why
I'm lying here tonight
And I can't stand the pain
And I can't make it go away
No I can't stand the pain

Chorus:
How could this happen to me
I've made my mistakes
got nowhere to run
the night goes on
As I'm fading away
I'm sick of this life
I just wanna scream
How could this happen to me

Everybody's screaming
I try to make a sound but no one hears me
I'm slipping off the edge
I'm hanging by a thread
I wanna start this over again

So I try to hold onto a time when nothing mattered
And I can't explain what happened
And I can't erase the things that I've done
No I can't

How could this happen to me
I've made my mistakes
got nowhere to run
the night goes on
As I'm fading away
I'm sick of this life
I just wanna scream
How could this happen to me

Ef þetta er ekki bara einn flottasti texti í heimi að þá heiti ég ekki Vala.

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 01:02:44 / val4-

..

Jesú sat á ströndinni og var á tali við mann. Þessi maður hafði lent á röngum vegi í lífinu. Hann hafði ánetjast sprautufíkn og var komin við dauðans dyr.
Á ströndinni voru spor eftir tvo menn, sporin lágu langt fram eftir ströndinnni, þar til spor eftir tvo menn breyttust í spor eftir einn mann.
Maðurinn spurði Jesú "Eftir hverja eru þessi spor?" Þá svaraði Jesú "Þessi spor eru lífsskeið þitt."
"En afhverju eru þá spor eftir tvo menn?" spyr maðurinn.
"Af því að ég vék ekki frá þér alla þína ævi" svarar Jesú.
"En þarna eru spor eftir aðeins einn mann, hví yfirgafstu mig á erfiðasta skeiði lífs míns?" spyr maðurinn.
"Ég yfirgaf þig aldrei.." svarar Jesú .. "..þarna bar ég þig þegar þú gast ekki staðið"



» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 14:42:38 / val4-

Páskar smáskar..

Vá hvað ég er ekki alveg að nenna að hafa þessa bloggsíðu.. Ég nenni aldrei að blogga, og hef ekkert rosalegan tíma í það heldur... 8)

En hvað um það. Gleðilega páska fólk! Mínir páskar voru hreint út sagt ÖMULEGIR. Ég fékk ekkert páskaegg, engan páskamat, OG ég var ein heima... Sem var reyndar alveg ágætt, þangað til að ég VEIKTIST ! Jebb... Það eina sem ég hef borðað í 4 daga núna, er eitt ristað brauð, og tvö súkkulaði kex... :$ Einn Magic og kókglas.. VÁ :whut:
Ég er bara eitthvað alvarlega veik .. Ég sver það.

Svo er það bara sumarið á næsta horni !! Ég finn alveg lyktina af því! Ég eelska sumarið! Ég þarf að gera svo margt... Það er náttla fyrst á dagskrá að skreppa norður á Sigló! Er svo oft búin að lofa mér þangað að ég verð eiginlega að fara að drulla mér þangað! Svo sakna ég auðvitað allra alveg viðbjóðslega mikið, og sveitarinnar :S Svo er ég komin með æði fyrir línuskautum, og mamma og ég ætlum að gefa mér línuskauta í afmælisgjöf.. Held ég..
Er það ekki annars mamma? :haha: love you longtæm :!:

Eeen, ég ætla að fara og taka til í þessu æðislega herbergi mínu, á meðan ég er nú í fríi, ég nenni ekki að byrja helgina á því að taka til hmm....

Já, og by the way, þetta blogg er tileinkað henni Gyðu Frænku.. love you longtæm tú darlíng :!: :lol:

http://www.yourspacenow.com/img/animated52.gif SKOÐIÐ þetta :P :P

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 14:24:52 / val4-

Guðmundur sökk í gær

Jæja kæru blogglesendur ... (ef það eru einhverjir)
Ég er bara hress :) Endalaust að vinna.. Einsog alltaf. Átti að fá þriggja daga helgarfrí, var að vinna laugard og þarf að mæta kl 4 á eftir... je, fallega helgarfríið :$

Annars fór ég á föstudaginn með Lovísu heim til vinar hennar.. Það var voða fjör hehe, við vorum þar einar í okkar eigin heimi hehe, svo komu þessir tveir gulldrengir inn, og allt í einu bara lifnaði yfir visakortinu og hún fór að vera voða kammó hehe. Lovísa hözzlah ;) En svo var ég eitthvað áðan að skoða síðu hjá gaur sem ég kannast við, neinei.. Þá eru gaurarnir sem komu í þetta partý þarna, með þessa síðu líka, og er þetta eitthvað svona metro4life gang... Það er voða í tísku að vera með hópblogg, og líka að vera metró.. Hehe.

E-ð rugl, helgin 13-17 okt!!! 016

Djamm,ÞOBBI 010

Hérna eru kapparnir.. Stelpur, hvað finnst ykkur ? ;) Hehe..
Hressir strákar...

En fyrir áhugasama að þá er slóðin á síðuna þeirra www.blog.central.is/metro4life.
Endilega skoðið ;)

En hvað um það.. ég er alveg fullbókuð næstu VIKURNAR! Og þá aðalega helgarnar...
Næstu helgi er ég að vinna laugardag sunnudag og mánudag, og svo helgina eftir það (útborgunarhelgi btw ;)) að þá fer ég til Eyja, því hún yndislega og sæta Ólöf Halla systir mín verður 11 ára, og auðvitað ætlar Valan að mæta og knúwsa hana :P

Svo er vinnuhelgi eftir það, s.s önnur helgin i Apríl, og svo er málið að skella sér norður á Sigló um páskana.. Eða fara í sumarbústað og slappa af með einni vinkonu, eða tvem.. Ég á eftir að ákveða hvort ég mun gera.. Fer allt bara eftir því hversu miklum peningum ég verð búin að eyða og hversu mikla peninga ég mun eiga eftir hehe =)

En annars að þá ætla ég að fara og taka mig til fyrir vinnuna, og keyra svo hann Jóa frænda í vinnuna.. Hann er svo ósjálfbjarga greyið... :$

Spáið í þessu .. :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 13:21:03 / val4-

..

Fuck trying to find happiness
Fuck thinking you actually loved me
Fuck believing you still care
Fuck trying to make things right
Fuck thinking that you're good
Fuck believing we could work
Fuck it
Fuck you
Fuck me
Just fuck everything

.....?

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 14:51:46 / val4-

Bleah!

Nú er það skítt ! Valan bara veik heima :( Ég er með sýkingar bara allstaðar og ég veit ekki hvað...

Fór úr vinnunni í gærkvöldi upp á bráðamóttöku, og fékk strax inn .. je :| Og fór í pissuprufur og blóðprufur og læti.. Og svo auðvitað fékk ég æðalegg! Alltaf þegar ég fer á sjúkrahús fæ ég svoleiðis.. Hvað er þetta með mig? (Fyrir ykkur sem vita það ekki að þá er það svona dæla sem mar fær til að fá lyf og vökva í æð) :)

En svo eftrir svona 3-4 tíma legu þarna inni að þá fékk ég loksins að fara heim, og er búnað vera hérna einsog mesti vesalingur.. Sef bara og sef. Er svo þreyttúr :(

En hvað um það..

Gamalt fólk... ? Hvað er það sem rekur það út í sturlun á þeirra seinni árum? Er þetta bara skylda, að vera leiðinlegur og bitur og rífast og skammast í allt og öllum. Við erum með eitt stykki slíka hérna fyrir ofan okkur, og hún er sko ekkert lítið geðveik maður ! 8| Og það útaf einu bílastæði !

Það má bara ENGINN leggja í þetta stæði, eða stæði.. Þetta er bara svona autt svæði fyrir framan stigann sem er mjög hentugt að leggja í ef þú ert að hoppa inn eða eitthvað slíkt, En nei.. Þau bara EIGA þetta stæði, PLÚS stæði sem er merkt þeirra bílnúmer, næst hurðinni! Ef þetta er ekki frekja að þá veit ég ekki hvað.. Og tja, geðveiki ;)

Oh ég ætlaði að koma með geggjað töff mynd hingað, en ég kann ekki að setja þær inn :frown:

Je held það tókst! Ef þið sjáið ekki að þá er ég misheppnaðasta manneskja í heiminum :D Hehe..

En annars var helgin ágæt, samt eiginlega eyðilögð útaf ákveðinni manneskjuuuu, sem skal fá að finna fyrir því... :^) Ég fór í bíó og gerði allskonar, út að borða og e-h..

Já ég fór í bíó með Ástu og Bryndísi vinkonu minni, við kauptum okkur miða á Casanova, og vorum niðri í Sal b (Álfabakka) og við eikkað löbbum niður og ég bara "je salur b, við erum fyrsta" og finnum okkur beeestu sætin. Og svo voru svo fáir og ég bara hm.. er etta ekki vinsæl mynd, og svo ætla auglýsingarnar aaaaldrei að enda, og ég var orðin smá pirr.. Þá kemur enn ein auglýsingin, þarna myndin Blóðbönd.. Og ég og Ásta bara "ooow langar að sjá hana" og svo... Þá er þetta ekki auglýsing! Þá höfðum við farið í vitlausan sal (undir minni leiðsögn) en ég sá ekki betur en þetta var salur B, en neeei, þá voru svona oggu lítil göng, hjá skiltinu sem stendur á Salur B og ÞAR var salurinn okkar, og Casanova! Og við vorum einsog hálfvitar, þorðum ekkert að standa upp þannig við bara horfðum á hana og viti menn! Hrólfur frændi er í henni hehehe "Hva, fékkstu þér aldrei í haus þegar þú varst hippi" Hehehe :D

En já.. Chio.


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 15:27:07 / val4-

drasl

You Have a Choleric Temperament
You are a person of great enthusiasm - easily excited by many things.
Unsatisfied by the ordinary, you are reaching for an epic, extraordinary life.
You want the best. The best life. The best love. The best reputation.

You posses a sharp and keen intellect. Your mind is your primary weapon.
Strong willed, nothing can keep you down. Your energy can break down any wall.
You're an instantly passionate person - and this passion gives you an intoxicating power over others.

At your worst, you are a narcissist. Full of yourself and even proud of your faults.
Stubborn and opinionated, you know what you think is right. End of discussion.
A bit of a misanthrope, you often see others as weak, ignorant, and inferior.


You're a Freaky Kisser
When you kiss, you want to experience something new
A new technique, a new partner, a new piercing...
And your own personal kissing style is very unpredictable
There's no saying where your tongue or hands will go

You Should Be A Gemini
What's good about you: witty and energetic, you're simply the most fun to be around

What's bad about you: you're flighty - losing interest in people and projects quickly

In love: you enjoy the "honeymoon phase," but after that it's hard for you to stick around

In friendship, you're: likely to have many groups of friends, with many different interests

Your ideal job: mime, guru, or cartoonist

Your sense of fashion: casual and simple

You like to pig out on: fast food, especially burritos


Yeah.. Endlilega lesið þetta og komið með nokkrar skoðanir, rétt eða rangt ? ;)



» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 22:50:20 / val4-

hell YEAH!

Sorry elskurnar mínar, ég hef verið svo upptekin síðustu daga að ég bra steingleymdi að blogga... :$
En þetta gerist ekki aftur..
Annars bara ógisslega gaman í nýju vinnunni minni jE.... :) hehe ... Og ég er að fara að eignast peninga og solls.. Get farið og gert við bílinn minn og þannig woho...

Ég er nebbla að spá í að skipta honum, þegar ég er búnað borga sem ég á eftir að borga hehe .. Er að spá í Golf... Held að það sé málið sko.. Mér finnst það helvíti töff bílar, svona akkúrat bíll fyrir mig.. Held ég geymi bara þetta hondu dæmi í smá tíma, kaupi mér bara þannig þegar ég verð rík hehe ;)

En ég hef voða fátt að segja, var að koma heim úr vinnunni, er að vinna btw 12 tíma á dag... 10:30 til 22:30 eh .. 8| En það er fínt.. Money money! svo er þetta bara svona 2 2 3, þannig ég vinn í tvo, frí í tvo, vinn þrjá, frí í tvo.. og finn svo og frí í þrjá.. Skiljiði? ;)

En já... Ætla að peista einni slóð hingað inn að snilldar síðu sem ég uppgötvaði um daginn.. Enjoy :) www.ezprezzo.com ... SNILLD :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 11:39:23 / val4-

Friday for teh win!

Jeij það er föstudagur again! Ég eeeelska föstudaga.. Það er svo mikil stemmning í þeim :P

En annars var ég í atvinnu viðtali í morgunn, og ég á bara að mæta á Mánudaginn í svona prufu og eitthvað.. En kallinum leist voða vel á mig og eitthvað æðislegt :) Útaf ég hef áður unnið í svona vinnu, þannig ég kann svona basics :P Ætla samt ekki að tilkynna alveg strax hvar þetta er, því ég vill ekki að fólk fari að koma og dýrka mig í vinnunni, þið verðið bara að bíða þangað til vinnudeginum líkur.. :P Hehe ..

En vá, í morgunn þegar ég var að keyra i viðtalið, að þá var ég að hlusta á Zúber, og þau voru eitthvað að tala um þarna Fuglaflensuna, og það er ekki spurning hvort fuglaflensan kemur til Íslands, heldur _hvenar_ ! 8| Og ég er ógeeeðslega sjúkdóma hrædd, og ég bara, ef að þetta kemur hingað og fer eitthvað að smitast á milli manna að þá skýt ég mig, því ég meika ekki að þúist, horfa upp á alla deyja og eitthvað ves... :frown:
En samt vona ég að þúist, við íslendingar sleppum bara við þetta (því að við erum svo frábær) útaf við erum svo lítil þjóð, og kannski deyjum við bara út..
Og svo er ég búin að banna mömmu að fara með Brásu niðrá tjörn, útaf ég vill ekki að hún smitist, og enginn kjúklingur framar í matinn!

En haha, shit.. Ég var að fatta það, að þúist.. Okay, ég var að sækja um á stað sem er með kjúkling á matseðlinum... Og þúist, kjúklingur er fugl! 8|
Kannski að maður hringi bara og segist hafað fengið aðra vinnu .... ::$



» 7 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 19:38:01 / val4-

Klukketíklukk!

Jæja... You got me there Gunna ;) ... DEM!
Ég neyðist víst að gera þetta klukki dæmi, annars gerist eitthvað ... rooosalegt. 0_o

4 störf sem ég hef unnið um ævina:

  1. Bæjarvinnan
  2. Passa börn... je :/
  3. Staðarskáli & Brú 
  4. Rúmfatalagerinn.. o/

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  1. Sweet home Alabama!!
  2. Boondock Saints - Eilla besta myndin mín! ;)
  3. Mary Poppins - Heh :$ 
  4. Clueless

4 staðir sem ég hef búið á:

 

  1. Foldahraun 40 900 VE
  2. Rauðarárstígur 34 105 RVK 
  3. Mjóstræti 1 580 Sigló
  4. Sörlaskjól 32 107 RVK - þar sem ég bý í dag ;) .. eh

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  1. X-Files
  2. Familiy Guy! :D
  3. Charmed
  4. Simpsons

4 síður sem ég skoða daglega, fyrir utan blogg:

  1. www.mbl.is
  2. www.blog.central.is/val4- Heh ;) 
  3. www.b2.is
  4. www.hugi.is

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  1. París - Frakkland
  2. Uhh.. Vestmannaeyjar ? ;)
  3. Ég hef aldrei farið neitt til útlanda :(
  4. Borgarnes

4 matarkyns sem ég held uppá:

  1. Kjötfars og Kál ! :D
  2. Pönnusteiktar núðlur sem mamm gerir! *slef*
  3. Steiktur fiskur.. =)
  4. Taco og svona Fahitas

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna: 

  1. Inní peningagryfju =)
  2. Í stórri kringlu með peningana úr peningagryfjunni!
  3. Á flugvellinum að kaupa flugvél fyrir peningana úr peningagryfjunni..
  4. Á Spáni með öllum vinunum og fjölsk! :D ... Og peningunum úr peningagryfjunni..

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3